| Skagaströnd og nágreni |
|
|
|
|
|
Skagaströnd og nágreni
Erfiðleikastig: Létt, mikið af malarvegaakstri og eitthvað af slitlagsakstri. Þessi ferð ætti að henta sérstaklega vel fyrir stóru og þungu hjólin, en mikið af malarvegum er á Skaganum.
Ekki er búið að leggja drög að ferðaáætlun en hún verður kynnt um leið og hún verður til. Hægt er að hefja ferðina á tvo vegu: keyra norður eftir malbikinu, annað hvort á hjólunum eða með það á kerru, eða fara um Arnavatnsheiði og Vatnsdal norður . Þeir sem taka hjólin á kerru, keyra þjóðveg 1 á Blönduós + 25 km á Skagaströnd.
Skráning og staðfestingargjald Þeir sem ætla að taka þátt í ferðinni verða að skrá sig hér á vefnum. Til að skrá sig þarf að vera innskráður og borgandi félagi í Slóðavini.
Fyrirkomulag ferðar Þátttakendum verður skipt upp í hópa, sem samanstanda af 2-6 ökumönnum. Það er undir þátttakendum komið hvernig hóparnir verða uppbyggðir. Hver hópur velur sér leið og reynt verður að láta hópanna aldrei fara sömu leiðina. Þannig náum við að safna mikið af gögnum á stuttum tíma. Ferðinni er ætlað að vera skemmti- sem og rannsóknarferð, en fáir hafa hjólað á svæðinu fyrir utan heimamenn.
Hjólasvæðið Lítið er vitað um svæðið að svo komnu máli, en þarna mun vera mikið af slóðum um allan Skagann.
Vegalengdir og bensín
Gerum ráð fyrir að hjóla um 100-200km á dag. Fyrir þá sem hafa litla tanka er gott að taka með 2x2L gosflöskur til að bera á bakinu. Þátttakendur verða sjálfir að reikna út hversu mikið bensin þarf að nota í ferðinni.
Gisting Gist verður í skíðaskálanum Skagaströnd.
Fyrir hvern er ferðin? Ferðin er aðeins fyrir félaga í Slóðavinum og fjölskyldur þeirra. Bæði tví- og fjórhjól eru velkomin.
Almenn tilmæli Við gerum ráð fyrir að þátttakendur í ferðinni séu á skráðum og tryggðum hjólum, beri númeraplötur (rauð eða hvít), hafi aldur til að hjóla og klæðist lögbundnum öryggisfatnaði. Þátttakendur hjóla eru á eigin ábyrgð.
|
Location : "Upplýsingar verða settar inn þegar nær dregur" Contact : Hjörtur |
| Registrations are now closed
|
Back
JEvents v1.5.4
Copyright © 2006-2009
|