|
Löng helgi með svipuðu sniði og undanfarin ár. Nánari lýsing á ferðinni er hér að neðan. Allar nánari upplýsingar gefur umsjónarmaður ferðarinnar. Ferðin er fyrir tví-, fjór- og sexhjól. Hægt er að varpa fram ábendingum á spjalli félagsins.
Erfiðleikastig: Miðlungserfitt. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þátttökugjald: Ekki vitað .
Umsjón: Jakob (tvíhjól) og Kristján (fjórhjól).
Skráning og þátttökugjald
Þeir sem ætla að taka þátt í ferðinni verða að skrá sig á vefnum, sjá neðst á þessari síðu. Til að skrá sig þarf að vera innskráður og borgandi félagi í Slóðavinum.
Seinasti skráningardagur er mánudagskvöldið 9. ágúst.
Undirbúningsfundur
Þriðjudaginn 10. ágúst verður haldinn undirbúningsfundur þar sem farið verður yfir ferðatilhögun. Það er nauðsynlegtt að þátttakendur mæti á þennan fund. Fundurinn hefst kl. 20:00 í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3.
Hjólasvæði
Ekki hefur alveg verið gengið frá því hvort að hjólað verði á og í kringum Melrakasléttuna eða hvort að farið verði á Fljótsdalsheiðina. Þetta kemur í ljós fljótlega.
Vegalengdir og bensín
Gerum ráð fyrir að hjóla um 150-300km á dag. Ferðirnar verða skipulagðar þannig að allir séu upplýstir um vegalengdir og bensínstopp.
Gisting, matur og annar búnaður
Ekki hefur verið gengið frá gistingu.
Fyrir hvern er ferðin?
Ferðin er aðeins fyrir félaga í Slóðavinum, og ætluð öllum hjólum. Athygli er vakin á því að aðeins mótorhjól með ljósabúnað og númeraplötu á hjólinu fá að taka þátt í viðburðinum. Þessum skilyrðum er fylgt eftir og verður þeim hjólurum vísað frá sem ekki uppfylla þessar kröfur félagsins.
Skipulag túranna
Þátttakendum verður skipt upp í litlar sjálfstæðar einingar, og því þarf engin að hafa áhyggjur af því að lenda í 30manna hjólahóp. Skipulag hjólatúranna verður nánar útfært á undirbúningsfundinum.
Almenn tilmæli
Við gerum ráð fyrir að þátttakendur í ferðinni séu á skráðum og tryggðum hjólum, beri númeraplötur á hjólinu, hafi aldur til að hjóla, séu með standara, framljós og klæðist öryggisfatnaði.
|