|
Helgarferð þar sem farið verður inn á nýjar brautir í ferðamennsku á mótorhjólum. Nánari lýsing á ferðinni er hér að neðan. Allar nánari upplýsingar gefur umsjónarmaður ferðarinnar. Ferðin er bara fyrir léttari tvíhjól. Hægt er að varpa fram ábendingum á spjalli félagsins.
Erfiðleikastig: Mjög erfitt, ekki fyrir byrjendur.
Þátttökugjald er 800kr.
Umsjón: Jakob, Ásgeir. og Halldór Sveins.
Upphaf og endir
Ferðin hefst í Reykjavík og endar í Reykjavík. Hvert við komum til með að hjóla ræðst á undirbúningsfundinum.
Skráning og þátttökugjald
Þeir sem ætla að taka þátt í ferðinni verða að skrá sig á vefnum, sjá neðst á þessari síðu. Til að skrá sig þarf að vera innskráður og borgandi félagi í Slóðavinum.
Undirbúningsfundur
Miðvikudaginn 3. ágúst verður haldinn undirbúningsfundur þar sem farið verður yfir ferðatilhögun. Það er nauðsynlegtt að þátttakendur mæti á þennan fund því engin fer í ferðina sem ekki kemur á fundinn. Á fundinn þarf að koma með hjólin og þær töskur/búnað sem verða á hjólinu í ferðinni. Fararstjórar koma til með að taka út frágang og útbúnað hjólanna. Fundurinn hefst kl. 20:00 í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3.
Hjólasvæði
Áætlað er að hjóla frá Reykjavík og enda í Reykjavík.Að öllum líkindum verður haldið í átt að Þingvöllum, þaðan haldið til Geysis og þaðan annað hvort upp til Kerlingafjalla eða beint inn á Heklusvæðið og svo til baka.
Vegalengdir og bensín
Gerum ráð fyrir að hjóla í um 200+ km á laugar- og sunnudeginum, en eitthvað styttri á föstudeginum. Bensínstopp verða að einhverju leiti skipulögð samhliða því sem ferðinni líður, en við komum til með að fastnegla þá staði þar sem við getum tekið bensín og skipuleggja ferðinna með það í huga. Farið verður yfir þessi atriði á undirbúningsfundinum.
Gisting, matur og annar búnaður
Gist verður í tjöldum sem við berum með okkur. Við komum til með að elda á prímusum og sofa í svefnpokum. Engin trússbíll verður með. Við komum til með að skipta með okkur búnaði og því er mikilvægt að mæta á undirbúningsfundinn og taka þátt í spjallinu til að við getum betur gert okkur grein fyrir því hvernig skipt verður í hópar. Gist verður við læki þannig að burður á vatni verður í lágmarki. Hugsanlega getum við komið því við stoppa í sjoppum og búðum þannig að sem minnst þurfi að bera af mat.
Fyrir hvern er ferðin?
Ferðin er aðeins fyrir félaga í Slóðavinum, og ætluð léttum tvíhjólum. Athygli er vakin á því að aðeins mótorhjól með ljósabúnað og númeraplötu á hjólinu fá að taka þátt í viðburðinum. Þessum skilyrðum er fylgt eftir og verður þeim hjólurum vísað frá sem ekki uppfylla þessar kröfur félagsins.
Skipulag túranna
Þátttakendum verður skipt upp í litlar sjálfstæðar einingar, og því þarf engin að hafa áhyggjur af því að lenda í 30manna hjólahóp. Skipulag hjólatúranna verður nánar útfært á undirbúningsfundinum.
Almenn tilmæli
Við gerum ráð fyrir að þátttakendur í ferðinni séu á skráðum og tryggðum hjólum, beri númeraplötur á hjólinu, hafi aldur til að hjóla, séu með standara, framljós og klæðist öryggisfatnaði.
|