Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir var stofnað með það að leiðarljósi að ná til sem flestra þeirra sem nota mótorhjólin sín til ferðalaga og útivistar. Félagsstarfið er knúið áfram af sameiginlegu áhugamáli félagsmanna, sem eru ferðlög á mótorhjólum. Félagið er fyrir konur, jafnt sem karla, unga sem aldna og í raun alla þá sem njóta þess að ferðast um landið á mótorhjólum. Gildir þá einu hvaða gerð mótorhjóla er notast við. Félagsskapurinn er m.a. fyrir eigendur eftir farandi tegunda mótorhjóla: - Fjórhjól,
- minni ferðahjól (svokölluð endúró-hjól)
- stærri ferðahjól (vélastærð oftast yfir 600cc).
Ef þú eruð ekki enn sannfærð(ur) um að félagsskapurinn henti þér, skulum við fara í gegnum einfallt próf. Ef þú svarar öllum spurningunum hér að neðan játandi, er félagsskapur Slóðavina eitthvað sem þú ættir að skoða betur. - Áttu mótorhjól, ert á leiðinni að kaupa mótorhjól, eða langar í mótorhjól?
- Finnst þér gaman að ferðast á mótorhjóli?
- Ertu að leita að skemmtilegum félagsskap þar sem allir hafa sama áhuga á mótorhjólum og þú?
- Viltu fræðast um skemmtileg hjólasvæði?
|