|
Fimmtudagur, 08. júlí 2010 23:10 |
Ég vil þakka mikil og jákvæð viðbrögð við styrktar/skemmtikeppninni næstkomandi sunnudag.
Hvað varðar undirbúning fyrir keppnina þá fór ég á Bolaöldu síðastliðinn laugardag og lagaði hluta af keppnisleiðinni sem keppt verður í á traktornum með flaghefilinn aftan á. Á mörgum stöðum þurfti að fara nokkrar ferðir til að laga skurði sem myndast hafa í gegn um árin eftir mikla notkun og vatnsskemmdir. Ég teiknaði fríhendis inn leiðina sem keppt verður í inn á mynd sem ég átti af slóðakerfinu á Bolaöldum fyrir þá sem átta sig á þessu.
Ég hef verið undanfarna daga að skreppa í fyrirtæki og betla vinninga og gjafir handa keppendum og sendi ég einnig mynd af hluta af vinningunum sem keppendur fá í lok dags, eins og sjá má á myndinni er töluvert til og sýnist mér að allt að 10 fyrstu fái vinning + aukaverðlaun eftir mínum geðþótta.
Tímatakan fer fram eins og í síðustu skemmtikeppni sem ég hélt um páskana 2006 þar sem nú stendur Korputorg. Þá sögðu (eða öskruðu) keppendur númerið sitt eftir hvern ekinn hring við tímatökuliðið (sá sem öskraði hæst fékk aðal verðlaun keppninnar þá).
Veðurspáin er góð og sjáumst á sunnudag í góðu og skemmtilegu skapi.
Hjörtur Líklegur.
P.S. Ef einhverjar spurningar eru varðandi keppnina þá verið ófeimin að kasta fram spurningu hér á spjallinu |