Heim
Skemmtikeppni Líklegs og VÍK 11 júlí 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 07. júlí 2010 18:28
liklegur

Um næstu helgi, sunnudaginn 11. júlí fer fram skemmtikeppni til styrktar Hirti L. Jónssyni. Keppnin er ætluð öllum og verður með nýstárlegu móti þar sem menn verða dregnir saman í tveggja manna lið og reynt að jafna liðin eins og hægt er þannig að vanur hjólari/keppandi er settur með óvönum hjólara og er markmiðið að allir hjóli á sínum hraða og skemmti sér hið besta og allir sitji við sama borð. Hlaupastartið verður endurvakið og bryddað upp á ýmsu óvenjulegu. Allir velkomnir, vanir, óvanir, konur, börn niður í 12 ára á 85 hjólum og fjórhjól en hjól verða að vera skráð og tryggð og ökumenn verða að klæðast öllum öryggisbúnaði. Brautin verður öllum fær og liggur um neðra svæðið í Bolaöldu. Við hvetjum alla til að taka þátt í fjörinu og styðja gott málefni í leiðinni.

Skráning fer fram HÉR og er hafin. Skráningunni lýkur kl. 23.59 á föstudagskvöldið 9. júlí.

Dagskrá:

10.00     Mæting
10-11     Skoðun – hjól sem ekki hefur verið keppt á í sumar
11.00     Liðalisti birtur – liðsmenn draga sig saman og mynda sér keppnisstrategíu
12.00     Start – hlaupastart a la Líklegur fyrir 50 fremstu menn, næstu 50 starta 30 sek. síðar með dauðan mótor
15.00     Keppni lýkur
15.15     Gos og grillaðar pylsur í boði fyrir keppendur.
15.30     Verðlaunaafhending

Reglur:

Keppnin er skemmtikeppni okkur öllum til skemmtunar og ánægjuauka og tekjur af keppninni renna til endurnýjunar/uppgerðar á Husqvarna hjóli Hjartar L. Jónssonar sem stolið var nýverið. Keppendum verður skipt í A (vana keppendur) og B (minna vanir og byrjendur) og svo verða A og B ökumaður dregnir saman í lið. B- ökumennirnir ræsa og ætlast er til þess að liðsfélagar skipti í a.m.k. á 3 hringja fresti eða oftar. Verði einhver vís af svindli, sleppir hliði, eða annað sem ekki er ætlast til í keppninni skal viðkomandi aka einn hring í motocrossbrautinni (ef keppnisstjórn sér og skynjar að annar keppandinn í liði hafi farið fleiri en 3 hringi í einu skal hann aka hring í motocrossbrautinni eftir 4. hring). Aðrar reglur verða samdar og refsingar og/eða sérstök bónusstig veittar eftir hendinni og fullkomlega að geðþótta keppnisstjóra. Góða skemmtun :)