Fjölskyldudagur Slóðavina fór fram í gær i Bolaöldum á svæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins VÍK í frábæru hjólaveðri í gær. 5 þrautir voru í gangi yfir daginn og dreifðist þáttaka vel í þær svo það var mikið að gera á öllum stöðum í einu og mátti sjá mikla einbeitingu hjá þeim sem tóku þátt.

Keppnin í enduro var ótrúlega jöfn en þarna skipti heildartími engu, bara að hafa alla þrjá hringina sína jafnasta. Í lokin voru það 2 þáttakendur sem höfðu hjólað alla hringina 3 á nákvæmlega sama tíma uppá sek, er það ótrúlegt þar sem hringurinn var ekin frá 2m25sek uppí 7m55sek.
Ein þrautin gekk útá að aka með eggjabikar með eggi í fest á frambrettið einn hring og þar mátti lítið útaf bregða ef eggið ætti ekki að rúlla útum alla braut og var andrúmsloftið þar hlaðið einbeitingu.
Í tæknibrautinni þurftu þáttakendur að hjóla yfir vegasalt, eftir löngum planka, færa keilu milli staða sem gekk misvel hjá hjólurum en allir fengu tvær tilraunir við hverja þraut.
Í sniglaakstrinum mátti næstum sjá tunguna standa útúr þáttakendum sem einbeittu sér að því að hjóla sem hægast ákveðna vegalengd, eitthvað sem við endurofólk erum ekki vön.
Tók þessi þraut því eðlilega svolítin tíma en til þess var nú leikurinn einmitt gerður.
Síðasta þrautin var svo blindakstur fjórhjóla en þar var ökumaður "blindaður" og varð að treysta á aðstoðarökumann, þar voru einungis 3 fjórhjól mætt svo allir voru tryggir með vinning, bara spurning um gull, silfur eða brons.
Gekk þetta ótrúlega vel og var hörð barátta í seinni ferðinni, það verður að segjast að ökumenn treystu sjón aðstoðarökumannana fullkomlega því hraðinn var ansi góður.
Þetta gekk svo vel að það varð til þess að Hjörtur Líklegur og Víðir urðu að sanna að þetta væri einnig hægt á tvíhjóli eins og má sjá á þessu myndbandi hér hraðinn hjá þeim var nú aðeins minni en takmarkinu var náð, þetta er hægt.
Úrslit úr þrautum dagsins eru eftirfarandi.
Enduro akstur
1. Steinþór Jónsson
2. Sævar Róbertsson
3. Gunnar Valur Jónasson
Eggjaakstur
1. Eiríkur Róbertsson
2. Sævar Róbertsson
3. Sandra Steinþórsdóttir
Tækniþraut
1. Aron Örn Gunnarsson
2. Sigurður Jónasson
3. Víðir Sigurðsson
Sniglaakstur
1. Gunnar Friðriksson
2. Hjörtur Blöndal
3. Aron Örn Gunnarsson
Blindakstur
1. Sandra Steinþórsdóttir / Steinþór Jónsson
2. Ari Þráinsson / Elín Gunnarsdóttir
3. Helena Steinþórsdóttir / Steinþór Jónsson
Við viljum þakka öllum þeim sem gáfu vinninga til þess að gera daginn skemmtilegri innilega fyrir stuðninginn.
Þar má helst nefna JHM-Sport, MXSport, Púkinn, Nítró, einnig Bílabúð Benna, Arctic Trucks, Olís, Aukaraf, Skeljungur, Honda og JAK.
Einnig þökkum við VÍK kærlega fyrir lánið af svæðinu og þessari flottu aðstöðu sem þeir eiga þarna í Bolaöldu og öllum þeim sem komu og áttu góðan dag með okkur.
Myndir frá fjölskyldudeginu má sjá hér. |